Mömmur eru bestar

Við erum þeirrar skoðunar að mömmur séu meðal besta fólks í heimi. Mæðradagurinn fellur í ár á sunnudaginn 11. maí og í tilefni dagsins tókum við saman nokkrar gjafahugmyndir fyrir þá sem ætla að gleðja mömmu um helgina.
Fyrir aktívu mömmuna væri t.d. tilvalið að velja vatnsvarið gönguteppi frá Tweedmill sem er létt og mátulega stórt til að tilla sér á til að hvíla luin bein í fjallgöngu, og jafnvel pláss fyrir vinkonu með, nú eða fallega nýja vatnsflösku.
Fyrir rólegu mömmuna má kannski velja slakandi te frá Kusmi Tea og/eða fallegan bolla eða teketil. Fyrir mömmur sem eru sælkerar mætti kannski benda á Tagine pott frá Emile Henry til að elda Norður-Afrískt gómsæti eða nýtt bökuform og blindbakstursperlur. Fyrir mömmuna sem hugsar um heilsuna má benda á safapressu frá Hurom eða hristibrúsa úr stáli frá Aya og Ida og fyrir mömmuna sem kann að njóta væri mætti ef til vill velja baðbombu frá Urð, ilmkerti frá Krumma eða yndislega sápu frá Ciment.
Hvaða týpa er mamma þín?
Nokkrar hugmyndir að gjöfum fyrir mömmur


blómarör, grænt
3.900 kr. – 4.900 kr.
