blómarör, blátt
3.900 kr. – 4.900 kr.
Blómarörin frá Plantstraws halda moldinni í blómapottinum í réttu rakastigi. Þú vefur bómullarþræðinum utan um ræturnar, þráðurinn liggur svo í gegn um rörið yfir í ílát með vatni. Þannig getur plantað náð sér í þann raka sem hún þarfnast og auðvelt er að sjá hvenær þarf að vökva. Svo er lítið mál að fara í langt ferðalag og setja einfaldlega vatn í stærri vasa, rörið sér um að leiða vatnið yfir í blómapottinn á meðan þú ert í burtu.
Minni gerðin af blómarörunum hentar fyrir blómapotta allt að 16 cm eða hæðarmun á potti og vasa upp á 13 cm.
Stærri gerðin er fyrir potta frá 11 til 26 cm eða hæðarmun allt að 23 cm.
Stílhrein rörin eru uppfinning hinnar sænsku Elinar Fyhr þegar hún var að leita leiða til að einfalda umhirðu pottaplantna fyrir þá sem gleyma gjarnan að vökva. Ást hennar formum og litum leiddi hana að þessari stílhreinu lausn til að halda blómunum á lífi.
Allar vörur frá Plantstraws eru framleiddar í Svíþjóð úr málmi og endurunninni bómull.
Vörumerki |
Plantstraws |
---|---|
Efniviður |
Bómull ,Málmur |
Litur |
Blátt |
Stærð |
20 CM ,30 CM |