brauðklukka úr járni

29.800 kr.

Á lager

Þessi bjöllulaga brauðofn úr steypujárni er best geymda leyndarmál súrdeigsbakara.  Kúpt lokið fangar gufuna svo að brauðið fær brakandi skorpu en er dúnmjúkt að innan.
Olíuborið járn hefur verið í uppáhaldi hjá brauðbökurum í margar kynslóðir, og það er góð ástæða fyrir því,  steypujárnsyfirborðið batnar með hverri notkun og skilar stöðugum hita svo úr kemur brauð í bakaríisgæðum. Eftir notkun er einfaldlegt að þvo formið og gott er að olíubera það öðru hvoru með bragðlítilli en hitaþolinni olíu.

Brauðklukkan þolir allt að 315˚ C og er tilvalin fyrir alla súrdeigsbakara og brauðáhugafólk – hvort sem bakað er daglega eða öðru hvoru.
Brauðofninn frá Lodge er eiturefnalaus, steyptur í Ameríku og hannaður til að endast og erfast milli kynslóða.

Brauðklukkan er 34 cm á breidd þar sem hún er stærst og um 19 cm á hæð.  Innanmál í botni er 24,5 cm.

VörumerkiLodge
EfniviðurJárn
LiturSvart