djúp ávaxtaskál m. korkloki, svört

15.900 kr.

Á lager

Ávaxtaskálin frá Emile Henry er úr keramík með korkloki. Lokið er hannað til þess að hægt sé að nota það sem aðra hæð á skálinni.
Keramíkskálin hentar til að geyma grænmæti á borð við lauk, rófur eða jafnvel kartöflur, öndunargötin á skálinni halda réttu rakastigi og myrkrið í skálinni seinkar spírun svo það er eins og þú eigir þína eigin niðurgröfnu kartöflugeymslu nema á eldhúsborðinu.
Korkskálina á „annarri hæðinni“ er þá hægt að nýta undir ávexti og ber en korkur virkar sem náttúruleg fæla á ávaxtaflugur auk þess sem korkurinn dregur í sig umframraka í ávöxtunum svo þeir þroskast hægar.

Djúpa ávaxtaskálin er 27 cm í þvermál og 18,5 cm á hæð.  Rúmmál um 4,7 l.

Vörumerki

Emile Henry

Efniviður

Keramík

,

Korkur

Litur

Svart

Stærð

27 CM