
djúp panna með loki Affinity
47.900 kr.
Á lager
Affinity vörurnar frá deBuyer eru með fimm lög af ryðfríu stáli og áli (stál-ál-stál-ál-stál) til að tryggja góða hitaleiðni. Kosturinn við marglaga pönnur er að hitinn dreifist jafnt og þétt upp með brúnum pönnunnar – ekki einungis í botninum. Gott er að nota pönnuna þegar verið er að loka kjöti og jafnvel til að flambera. Þá hentar hún einnig vel í rétti sem þurfa að malla.
Brúnin á djúpu pönnunni er hönnuð til þess að auðvelt sé að hella úr henni.
Ø24 cm djúpa pannan rúmar 3,2 lítra og er 8 cm á dýpt. Botninn er 20,5 cm.
Það má setja djúpu Affinity pönnuna í uppþvottavél og gengur hún enn fremur á öll helluborð – einnig á spanhellur (induction). Hitaleiðni pönnunnar er gríðarlega góð og er því mælt er með að hita hana jafnt og þétt í stað þess að setja hitann strax í botn.
| Vörumerki |
deBuyer |
|---|---|
| Stærð |
Ø 24 CM |
| Efniviður |
Ál ,Stál |
| Litur |
Stál |

