Fallegt gjafasett með rafmagnskvörnum frá Peugeot. Ein kvörn fyrir pipar og önnur fyrir salt báðar með fínstillingum fyrir mismunandi mölun. Grófleikinn er stilltur með því að snúa neðri hluta kvarnar og hún er sett í gang með því að snerta toppinn. Um leið og kvörnin malar kveikir hún ljós svo auðvelt er að sjá hversu mikið er kryddað. Auðvelt er að fylla á kvörnina og skipta um rafhlöður en hún gengur fyrir venjulegum AAA rafhlöðum.
Við mælum með piparnum frá Peugeot og grófa saltinu sem hentar einkar vel fyrir mölun í kvörn.