gólfmotta HILL 70×270 græn
42.900 kr.
Á lager (og hægt að leggja inn biðpöntun)
Pappelina kynnir sumarlínuna 2025 sem kennd er við South Beach í Miami á Florida og færir litríka sólarmenningu inn á heimilin.
Hill motturnar eru hæðóttar og minna á sandhólana á ströndinni en eru í fallegum pasteltónum sem eru einkennandi fyrir suðupott menningar þar sem Bandaríkin og Suður-Ameríka mætast syðst á Flórídaskaganum. Bakhliðin er líka skemmtilega abstrakt.
Pappelinu motturnar eru soðnar saman á endunum sem gerir það að verkum að motturnar geta ekki raknað upp og liggja mjög flatar á gólfinu, án falds. Þykkt á mottunni er um 5 mm. Það getur munað ±4% innan stærða vegna þeirra handverksferla í framleiðslunni.
Hill motturnar koma í fjórum stærðum og sex litum. Ef óskamottan þín er ekki til á lager geturðu samt pantað hana, afgreiðslufrestur á sérpöntunum er að jafnaði 3-4 vikur.
Vörumerki |
Pappelina |
---|---|
Efniviður |
Hör ,PVC plast |
Litur |
Ljósgrænt |
Stærð |
70 x 270 CM |