SAM er hluti af “the Linen Collection” línunni frá Pappelinu sem blandar saman hefðbundnum vefnaði og nútímalegu slitsterku efni. Útkoman er óvenjulegt sambland af náttúrulegu efni og manngerðu sem er öruggt að vekur athygli í hvaða rými sem er.
Vefnaðurinn sem notaður er í SAM er afrakstur samstarfs meistara vefarans Kim Fröyen og hönnuðarins Linu Rickardsson en þau nota einstaka blöndu af hörþráðum í uppistöðu með plastborðum (PVC) í ívafi og skapa fallegar mottur sem eru innblásnar af litum úr skandínavískri náttúru.
The Linen Collection gólfmotturnar eru faldaðar og um 10 mm á þykkt. Það getur munað ±4% innan stærða vegna þeirra handverksferla sem teppin ganga gegn um í framleiðslunni.
SAM motturnar koma í fjórum stærðum og tíu litum. Ef óskamottan þín er ekki til á lager geturðu samt pantað hana, afgreiðslufrestur á sérpöntunum er að jafnaði 3-4 vikur.