gólfmotta SVEA 70×50 hvít
8.500 kr.
Í boði sem biðpöntun
Svea gólfmotturnar frá Pappelinu eru með sanseruðum „metallic“ þráðum sem brjóta upp annars einlita mottu. Í hvítu mottunni er svokallaður „white metallic“ þráður í bland við þann hvíta.
Þessar gerðir eru soðnar saman á endunum sem gerir það að verkum að motturnar geta ekki raknað upp og liggja mjög flatar á gólfinu, án falds. Þykkt á mottunni er um 5 mm. Það getur munað ±4% innan stærða vegna þeirra handverksferla sem teppin ganga gegn um í framleiðslunni.
Motturnar koma í fjölmörgum stærðum, mynstrum og litum. Ef óskamottan þín er ekki til á lager geturðu samt pantað hana, afgreiðslufrestur á sérpöntunum er að jafnaði 3-4 vikur.
| Vörumerki |
Pappelina |
|---|---|
| Efniviður |
PVC plast |
| Litur |
Hvítt |
| Stærð |
70 x 50 CM |

