gólfmotta TOM 70×120, blá

20.900 kr.

Á lager (og hægt að leggja inn biðpöntun)

TOM gólfmottan frá Pappelinu er undir áhrifum frá járngirðingum og byggingarlistarlegum smáatriðum sem finnast í Palm Springs, sem og afslappaðri glamúr sjötta áratugarins. Með hreinum grafískum línum og litasamsetningu sem á rætur að rekja til nútímalegrar hönnunar frá miðri síðustu öld (e. mid century modern), fyllir TOM heimilið persónuleika, þar sem nostalgía mætir nútíma einfaldleika.

TOM Ocean Blue sameinar stilltan hafbláan, rjómahvítan og ljósbláan lit í tímalausri litapallettu í anda miðrar aldarinnar með léttum og grafískum blæ. Prófaðu líka að snúa mottunni við til að uppgötva hvað mynstrið breytist mikið þegar litunum er víxlað.

Mottan eru soðin saman á endunum sem gerir það að verkum að motturnar geta ekki raknað upp og liggja mjög flatar á gólfinu, án falds. Þykkt á mottunni er um 5 mm. Það getur munað ±4% innan stærða vegna þeirra handverksferla sem teppin ganga gegn um í framleiðslunni.

Pappelina motturnar koma í fjölmörgum stærðum, mynstrum og litum. Ef óskamottan þín er ekki til á lager geturðu samt pantað hana, afgreiðslufrestur á sérpöntunum er að jafnaði 3-4 vikur.

Vörumerki

Pappelina

Efniviður

PVC plast

Litur

Blátt

,

Ljósblátt

Stærð

70 x 120 CM