grænt te, BB Detox

3.290 kr.

Á lager

BB Detox heilsuteið frá Kusmi Tea er guðdómleg blanda af grænu te, maté, greipaldi og frískandi ávöxtum.  Gómsætt og lífrænt

Frá því það kom fyrst í hillur Kusmi tebúða hefur BB Detox verið vinsælasta heilsuteið þeirra og það hefur haldið þeirri stöðu æ síðan. Hin heilsutein eru kannski græn en það stafar ekki af öfund enda er BB Detox látlaust og fer vel með frægðina. Ljúf blanda af grænu te, rauðrunnalaufum og kristþyrni sem heldur alltaf kúlinu (svo lengi sem vatnir er vel heitt 😉 og býður upp á spennandi bragðupplifun.  Fyrst ber að nefna greipaldin sem er mátulega súrbeiskt, þá gúarana fræi sem gefa kraft og færa hugann á framandi slóðir, að ógleymdri djarfri myntu.  Allt saman úr lífrænni ræktun.

Þú hefur kannski nú þegar heyrt um þetta uppáhaldste margra.. en ef svo ekki þá vörum við þig við!  Eftir að þú hefur smakkað BB Detox er erfitt að lifa án þess.Hvað er annars þetta Maté sem allir eru að tala um?  Sléttukristþyrnir (l. Ilex paraguariensis) vex í Suður-Ameríku og hefur te af laufum hans verið drukkið í margar aldir þar um slóðir.  Þekktasta útgáfan er Yerba Maté sem borið er fram í kúptum bollum úr grasgeri og drukkið í  gegnum rör.  Maté inniheldur koffín.

Innihald:  grænt te*(32%) , nýpur* (e. rosehip),  sléttukristþyrnir* (mate) (17%), rauðrunnablöð* (rooibos), fennill*, mynta*, gúarana*, náttúruleg ávaxtabragðefni, náttúruleg greipaldin bragðefni, náttúruleg appelsínu bragðefni
*úr lífrænt vottaðri ræktun

Bruggtími: 3-4 mínútur
Hitastig: 85°C

Vörumerki

Kusmi Tea

Stærð

100 grömm