Daggmossa vörurnar frá Vakinme eru sefandi og slakandi með ferskum appelsínu, greipaldin, jasmín og sedrusviðarilm.
Appelsína: róar og léttir lund.
Greip: hressir við og léttir lund.
Jasmín: stillir og slakar.
Sedrusviður: sefar.
Handáburðurinn frá Vakinme er mildur og mýkjandi með hráum lífrænt vottuðum innihaldsefnum. Hann er án parabenefna, sílikona, PEG-efna og tilbúinna efna. Í honum er að finna slakandi og heilandi hráefni eins og birkikjarnolíu og aloe vera. Þá eru einnig möndluolía og sheasmjör í áburðinum sem næra, endurhæfa og vernda húðina.