Hurom blandari dökkgrár

25.900 kr.

Á lager

Kraftmikill 3-í-1 blandari frá Hurom með 1000w mótor sem ræður við flest verkefni.  Sterkbyggðir hnífar snúast allt að 22.000 snúninga á mínútu, tvær hraðastillingar og púlstakki. Hvort sem um er að ræða klaka eða frosna ávexti, krydd eða baunir þá er leikur einn að  mauka og mala.   .

Með blandaranum fylgja:
Stóri blandarinn (1,5 l) með margföldum hníf (Hexa Blade) sem maukar þeytinga (smoothie), sósur og hvers kyns marineringar og ræður auðveldlega við klaka og frosna ávexti.
Hakkari (450 ml) með beittum tvöföldum hníf (Chop Blade) sem hakkar niður allt frá hvítlauk að beinlausu kjöti.
Malari (300 ml) með stífu (Chrush Blade) sem breytir þurrum efnum, s.s. kaffibaunum og kryddi í fínt malað duft án fyrirhafnar.
Ferðamál (600 ml) til að kippa gómsætum blöndum með sér í ræktina eða á leið til vinnu.

Hjá Hurom er öryggið í fyrirrúmi, allir baukarnir eru með læsingu svo það er tryggt að ekki er hægt að taka þá óvart í sundur, og vélin fer að sjálfsögðu ekki í gang nema allt sé á sínum stað.

Við mælum með því að láta blandarann sjálfan um að hreinsa sig – þú setur einfaldlega volgt vatn og nokkra dropa af uppþvottalegi í dunkinn og setur blandarann í gang í smástund.

Stærð: 41,5 x 18,8 x 17,2 cm
Þyngd: 2,32 kg

 

 

VörumerkiHurom
LiturDökkgrátt