Kefirgerð og neysla er aldagömul leið til að auka magn góðgerla í mataræði og auka geymsluþol mjólkur. Kefirgerð er einföld, kefirgrjón eru sett út í mjólk til að búa til súrmjólk (mjólkurkefir) eða út í sykurvatn til að búa til léttfreyðandi svaladrykki. Grjónin og vökvinn eru svo látin gerjast í nokkra daga áður en grjónin eru síuð frá og súrmjólkin eða vatnskefirinn eru sett í kæli. Kefirgrjónin eru svo sett út í nýja lögun og ferlið hefst upp á nýtt.
Í kefirsettinu er:
1 x 0,5 lítra víð krukka
1 x mæliskeið úr beyki
1 x sílikonlok með sigti
1 x stállok
1 x uppskrift
Krukkan og sílikonlokið mega fara í uppþvottavél en lokið og mæliskeiðina þarf að handþvo og þurrka strax.