lítill smjörhnífur, Bistrot Dune
3.290 kr.
Litli smurhnífurinn í Bistrot línunni fra Sabre Paris sómir sér vel á brauðdiskinum við kvöldverðarborðið jafnt sem á hlaðborði þar sem hann dreifir smjöri, smyrjum og kæfum fullkomlega.
Bistrot Dune kemur í tveimur litbrigðum, ljósu og dökku en þar sem mynstrið er síbreytilegt eru engir tveir hlutir nákvæmlega eins.
Bistrot línan má fara í uppþvottavél en hitastigið má að hámarki vera 45°C og mælt er með því að opna vélina um leið og hún klárar. Þegar hnífapörin eru þvegin í höndum ber að forðast grófa svampa. Ef vatnsblettir sjást á hnífsblöðum má auðveldlega fjarlægja þá með mjúkum klút og ef til vill smá hvítu ediki. Hnífapör með ljós handföng ættu ekki að liggja lengi í snertingu við litsterkan mat s.s. kaffi, te eða tómatasósu.
| Vörumerki | Sabre Paris |
|---|---|
| Litur | Ljóst, Svart |
| Stærð | 14 CM |

