mjó hvít jólakerti

1.790 kr.

Á lager

Þessi litlu mjóu kerti hafa lengi haft tengingu við jólin þar sem algengt var að kerti í þessari stærð væru notuð til að lýsa upp jólatré áður en rafmagnsseríurnar komu til sögunnar.  Í dag eru þau t.d. notuð í englaspil sem snúast og svo eru þau líka falleg á hátíðarborðinu án þess að skyggja of mikið á veislugesti.

Mjóu kertin frá Kunst Industrien hafa verið framleidd af fjölskyldu í Vestur-Jótlandi í Danmörku síðan 1975.
Kertin eru heillit og með jöfnum lit í gegn.
Þessi koma tólf saman í pakka, þvermál kertisins er 1,3 cm, hæðin 12 cm og er brennslutíminn um 2 klst.

Vörumerki

Kunst Industrien

Efniviður

Paraffín

Litur

Hvítt

Stærð

12 CM