Umgjörð mjólkurflóarans er úr plasti og kannan sjálf er úr ryðfríu stáli og má því fara í uppþvottavél. Það er bæði heit og köld stilling á mjólkurflóaranum, annars vegar rauður takki og hins vegar blár takki. Vélin slekkur svo sjálfkrafa á sjálfri sér eftir notkun. Hægt er að flóa allt að 350 ml af mjólk. Þá er einnig hægt að froða allt að 200 ml af mjólk (framleiðir þá allt að 400 ml af mjólkurfroðu).
Mjólkurflóarinn er hluti af Young Line línu Graef og eru vörurnar framleiddar til þess að vera einfaldar í notkun og nettar í lögun svo pláss er fyrir þær í öllum eldhúsum, stórum sem smáum.