nestisbox ToGo Organic, 2ja hæða

5.290 kr.

Á lager

Nestisboxið er 100% loftþétt og því fylgir sílikonól svo auðvelt er að ferja það á milli staða. Það fylgir einnig lítið skilrúm svo hægt er að setja ólíkan mat í sama boxið. Það má setja nestisboxið í uppþvottavél og örbylgjuofn en athugið að það má ekki vera lengur en þrjár mínútur samfellt í örbylgjuofninum.
Hvort box rúmar 500 ml og er 19,2 cm á lengd, 10 cm á breidd og 5 cm á hæð.

ToGo Organics línan hjá Lekué er stórt skref í markmiði vörumerkisins að gera framleiðsluna og vöruúrvalið umhverfisvænt. Organics heiti línunnar vísar í plöntutrefjarnar sem finna má í vörunum. Plöntutrefjarnar samanstanda aðallega af sellulósa og eru fengnar frá úrgangi af viðarvinnslu. Úrgangurinn er rifinn, síaður og sótthreinsaður áður en honum er blandað við própýlínplasti (sem er endurvinnanlegt). Úr verður nýr efniviður án þess að sóa auðlindum og sem dregur sömuleiðis úr kolefnislosun, annars yrði viðarúrgangurinn brenndur.

Vörumerki

Lékué

Efniviður

Plast

,

Plöntutrefjar

,

Sílikon

Litur

Ljósbrúnt

Stærð

1000 ML