Latneska heiti býsvelgsins er Merops apiaster og er hann einstaklega litríkur fugl. Einkennandi fjaðrir býsvelgsins eru svo litríkar að fuglinn grípur auga allra. Pappírsdýrin frá Plego koma í sléttu umslagi sem vegur aðeins 160 grömm og eru því tilvalin í gjafir sem þarf að senda.
Í umslaginu eru 5 litaðar pappírs-og bómullar arkir sem upplitast síður af ljósi. Þá er einnig að finna skemmtilega örk með helstu upplýsingum um býsvelginn og að lokum leiðbeiningar. Það er nú þegar búið að klippa partana úr örkinni og er hver partur merktur svo auðvelt sé að samanbrjóta og festa þá saman. Athugið að það þarf svolítið hvítt, fljótandi lím og ef til vill tannstöngla til að ná öllum fuglinum saman.
Býsvelgurinn er hannaður til þess að standa við enda á yfirborði svo stélið hangi niður. Erfiðleikastig samsetningarinnar er þrír af sex og eiga 12 ára og eldri að eiga auðvelt með föndrið.