Latneska heiti förufálkans er Falco peregrinus og er hann meðalstór fugl. Pappírs förufálkinn er stór og tignarlegur og þarf að gefa sér góðan tíma í samsetningu hans. Pappírsdýrin frá Plego koma í sléttu umslagi sem vegur aðeins 160 grömm og eru því tilvalin í gjafir sem þarf að senda.
Í umslaginu eru 10 litaðar pappírs-og bómullar arkir sem upplitast síður af ljósi. Þá er einnig að finna skemmtilega örk með helstu upplýsingum um förufálkann og að lokum leiðbeiningar. Það er nú þegar búið að klippa partana úr örkinni og er hver partur merktur svo auðvelt sé að samanbrjóta og festa þá saman. Athugið að það þarf svolítið hvítt, fljótandi lím og ef til vill tannstöngla til að ná öllum fuglinum saman.
Förufálkinn er hannaður til þess að hanga niður úr lofti. Erfiðleikastig samsetningarinnar er fimm af sex og eiga 12 ára og eldri að eiga auðvelt með föndrið.