Búið í bili
pastasett Ankarsrum
26.900 kr.
Ekki til á lager
Það er fátt huggulegra en að gæða sér á heimatilbúnu pasta, ekki síst þegar fyrirhöfnin hefur ekki verið mikil.
Pastarúllurnar frá Ankarsrum eru unnar í samstarfi við ítalska vörumerkið Marcato sem á yfir 80 ára reynslu í pastagerð sér að baki. Í þessu setti er slétt rúlla fyrir plötur til dæmis fyrir gómsætt lasagne eða fyllta pastakodda (ravioli) og skurðarrúlla fyrir Fettuccine.
Pastarúllurnar eru notaðar með því að setja Assistent Original vélina á hliðina. Því næst festa rúlluna við mótorinn (sjá myndband) og hún er tilbúin til notkunar. Með henni færðu pastaplötur sem eru 145 mm á breidd og frá 0,6-4,8 mm á þykkt.
| Vörumerki | Ankarsrum |
|---|


