Nýtt

pastaskeið, Bistrot Dune

12.900 kr.

Spagettiskeiðin eða ausan í Bistrot línunni frá Sabre Paris er fullkomin til að skammta langt pasta, s.s. spagettí, tagliatelle eða linguine.  Hún er löng með stórum ávölum tönnum til að halda pastanu á sínum stað og götum í botninum svo þú drukknir ekki í sósunni.
Bistrot Dune kemur í tveimur litbrigðum, ljósu og dökku en þar sem mynstrið er síbreytilegt eru engir tveir hlutir nákvæmlega eins.

Bistrot línan má fara í uppþvottavél en hitastigið má að hámarki vera 45°C og mælt er með því að opna vélina um leið og hún klárar.  Þegar hnífapörin eru þvegin í höndum ber að forðast grófa svampa.  Ef vatnsblettir sjást á hnífsblöðum má auðveldlega fjarlægja þá með mjúkum klút og ef til vill smá hvítu ediki.    Hnífapör með ljós handföng ættu ekki að liggja lengi í snertingu við litsterkan mat s.s. kaffi, te eða tómatasósu.

VörumerkiSabre Paris
LiturLjóst, Svart
Stærð30 CM