rafknúin piparkvörn Elis

18.500 kr.

Á lager

Falleg rafmagnspiparkvörn frá Peugeot með fínstillingum fyrir mismunandi mölun. Grófleikinn er stilltur með því að snúa neðri hluta kvarnarinnar og hún er sett í gang með því að snerta toppinn. Um leið og kvörnin malar kveikir hún ljós svo auðvelt er að sjá hversu mikið er kryddað.
Auðvelt er að fylla á kvörnina og skipta um rafhlöður en hún gengur fyrir venjulegum AAA rafhlöðum. Hægt er að kaupa saltkvörn í stíl við piparkvörnina.

Vörumerki

Peugeot

Efniviður

Stál

Litur

Stál

Stærð

20 CM