Lýsing
H-200 safapressan frá Hurom er af nýjustu kynslóð „slow juicer“ safapressa en þú þarft hvorki að skera niður hráefnið né ýta því í gegnum vélina. Þú einfaldlega fyllir könnuna af gómsætu grænmeti og/eða ávöxtum og setur í gang. Í botni könnunnar er blað sem brytjar niður og leiðir hráefnið niður að sniglinum. Snigillinn sem pressar hráefnið snýst eingöngu 50 snúninga á mínútu, en kosturinn við hæga pressun er sú að næringarefnin haldast í safanum og úr verður minna hrat. Nýstárleg hönnunin á síunni auðveldar þrif til muna.
Það er bæði hægt að setja ávextina/grænmetið í könnuna og láta vélina vinna eða nota gatið á lokinu til þess að bæta við í safann smátt og smátt. Það tvöfalt sigti í vélinni og safinn rennur niður í 7 gráðu halla sem sér til þess að hver dropi sé nýttur.
Snúningshraði vélarinnar er 50 rpm og hún er 200W. Vélin getur pressað allt að 400 ml hverju sinni og er mjög auðvelt að taka hana í sundur og þrífa.
Safapressunni fylgja safaílát, ílát fyrir hratið, bursti, uppskriftabók og leiðarvísir. Hurom veitir 10 ára ábyrgð á mótor.