H-320 safapressan er af nýjustu kynslóð „slowjuicer“ véla sem þarf hvorki að skera niður hráefnið né ýta því í gegn. Þú einfaldlega fyllir könnuna af gómsætu grænmeti og/eða ávöxtum og setur í gang opið er 13,6 cm að þvermáli). Í botni könnunnar er blað sem brytjar niður og leiðir hráefnið niður að sniglinum. Snigillinn sem pressar hráefnið snýst eingöngu 50 snúninga á mínútu, en kosturinn við hæga pressun er sú að næringarefnin haldast í safanum og úr verður minna hrat. Þá er líka bursti innan í meshsigtinu sem snýst 17 snúninga á mínútu og brýtur innihaldið enn frekar niður.
Það er bæði hægt að setja ávextina/grænmetið í könnuna og láta vélina vinna eða nota gatið á lokinu til þess að bæta við í safann smátt og smátt. Það er tvöfalt sigti í vélinni, fínt og gróft, og meshsigti sem sér til þess að hver dropi er nýttur.
Snúningshraði vélarinnar er 50 rpm og hún er 200W. Vélin getur pressað allt að 2000 ml hverju sinni og er auðvelt að taka hana í sundur og þrífa.
Safapressunni fylgja safaílát, fínt og gróft sigti, ílát fyrir hratið, bursti, uppskriftabók og leiðarvísir. Hurom veitir 10 ára ábyrgð á mótor.