safapressa H-70ST, svört
99.800 kr.
Á lager
H-70ST safapressan er af nýjustu kynslóð safapressa og hefur þann kost að það þarf hvorki að skera niður hráefnið né ýta því í gegn. Þú einfaldlega fyllir könnuna af gómsætu grænmeti og/eða ávöxtum og setur í gang (opið er 13,6 cm í þvermál). Í botni könnunnar er blað sem brytjar niður og leiðir hráefnið niður að sniglinum. Snigillinn sem pressar hráefnið snýst 60 snúninga á mínútu, en kosturinn við hæga pressun er sú að næringarefnin haldast í safanum og úr verður minna hrat.
Bæði er hægt að setja ávextina/grænmetið í könnuna og láta vélina vinna eða nota gatið á lokinu til þess að bæta við í safann smátt og smátt.
H-70ST vélin er úr Pure Press línunni frá Hurom og er hugsuð sérstaklega fyrir þá sem vilja hafa safann sinn afar tæran og lausan við aldinkjöt. Vélinni fylgir einnig sérstakt ísgerðarsigti til að útbúa ís úr frosnum ávöxtum.
Snúningshraði vélarinnar er 60 rpm og hún er 150W. Vélin getur pressað allt að 1800 ml hverju sinni og er það er hægt að láta hana ganga í allt að 30 mínútur í senn.
Safapressunni fylgja safakanna, ílát fyrir hratið, íssigti, bursti, uppskriftabók og leiðarvísir. Hurom veitir 15 ára ábyrgð á mótor.
| Vörumerki | Hurom |
|---|---|
| Litur | Svart |
| Stærð | 17,4 x 21,6 x 44,1 m |

