salatskál dimmblá 3 stærðir
4.900 kr. – 9.800 kr.Price range: 4.900 kr. through 9.800 kr.
Fallegar salat- og meðlætisskálar frá Emile Henry sem sóma sér vel á matborðinu þínu hversdags og í veislum.
Skálarnar henta hvort heldur sem er til að bera fram salöt og heitt eða kalt grænmeti með mat eða til að blanda deig og í matreiðslu.
Þær eru búnar til úr „High Resistance“© keramík og þola því frá -20 til 270° hita svo það má nota þær til að hita upp í ofni jafnvel beint úr ísskápnum.
Ferkantað form skálanna hentar einkar vel til að hvíla salatáhöld og skeiðar á matborðinu án þess að þau renni til.
Skálarnar mega fara í uppþvottavél, ofn og örbylgjuofn. Laust við blý, kadmíum og nikkel.
Litla skálin tekur 2,1 l, er 17,5 x 17,5 cm og er 12 cm á hæð
Miðstærð tekur 3,5 l, er 22 x 22 cm og 14 cm á hæð
Stærsta skálin tekur 5,7 l, er 26 x 26 cm og 16 cm á hæð
| Vörumerki |
Emile Henry |
|---|---|
| Efniviður |
Keramík |
| Litur |
Dökkblátt |
| Stærð |
2 L ,3,5 L ,5,5 L |



