





sápa Ecaille
1.980 kr.
Ekki til á lager
Ciment Paris er lítil sápugerð sem Solène og Jérémy settu á fót í París með sjálfbærni og nálægðarhagkerfi í huga.
Sápurnar þeirra eru handgerðar frá grunni í köldu sápuferli, innihaldsefnin eru lífræn án ofnæmisvaka og ilmkjarnaolía. Sápurnar eru því umhverfis- og húðvænar og ilma að auki undurvel. Hver sápa er listaverk með grafísku mynstri sem lífgar upp á baðherbergið eða eldhúsvaskinn.
Écaille sápan fær nafn sitt af skeljamynstrinu sem prýðir hana, hún ilmar af magnólíu og hentar öllum frá 3 ára aldri.
Innihaldsefni: kókosolía (sodium cocoate)**, vatn, sesamolía (sodium sesameseedate)** glýserín**, ilmefni, glitur (MICA), CI 77891, CI 77015, CI 77861, CI77268
** unnið úr lífrænum innihaldsefnum.
Geymist við herbergishita og látið þorna vel á milli. Notið útvortis. Varist að sápa berist í augu og hættið notkun ef óþægindi koma fram.
Vörumerki |
Ciment |
---|---|
Stærð |
100 grömm |