sápa Fanion
1.980 kr.
Á lager
Ciment Paris er lítil sápugerð sem Solène og Jérémy settu á fót í París með sjálfbærni og nálægðarhagkerfi í huga.
Sápurnar þeirra eru handgerðar frá grunni í köldu sápuferli, innihaldsefnin eru lífræn án ofnæmisvaka og ilmkjarnaolía. Sápurnar eru því umhverfis- og húðvænar og ilma að auki undurvel. Hver sápa er listaverk með grafísku mynstri sem lífgar upp á baðherbergið eða eldhúsvaskinn.
Fanion sápan ilmar af bómullargreinum og er afar mild svo hægt er að nota hana daglega fyrir líkama, hendur og andlit. Mynstrið og litirnir í sápunni minna á Bastilludaginn í París þar sem litrík flögg (fr. fanion) ber við himinn og borgin iðar af lífi.
Innihaldsefni: kókosolía (sodium cocoate)**, vatn, sesamolía (sodium sesameseedate)** glýserín**, ilmefni, CI 77491, citronellol, linalool
** unnið úr lífrænum innihaldsefnum.
Geymist við herbergishita og látið þorna vel á milli. Notið útvortis. Varist að sápa berist í augu og hættið notkun ef óþægindi koma fram.
Vörumerki |
Ciment |
---|---|
Stærð |
100 grömm |