sápa Kimono

1.980 kr.

Á lager

Ciment Paris er lítil sápugerð sem Solène og Jérémy  settu á fót í París með sjálfbærni og nálægðarhagkerfi í huga.
Sápurnar þeirra eru handgerðar frá grunni í köldu sápuferli, innihaldsefnin eru lífræn án ofnæmisvaka og ilmkjarnaolía.  Sápurnar eru því umhverfis- og húðvænar og ilma að auki undurvel.   Hver sápa er listaverk með grafísku mynstri sem lífgar upp á baðherbergið eða eldhúsvaskinn.

Mynstrið í Kimono sápunni er innblásið af japönskum búningi og hefur róandi hughrif, hún ilmar af kirsuberjablómum og hentar öllum frá 3 ára aldri.

Innihaldsefni:   kókosolía (sodium cocoate)**, vatn, sesamolía (sodium sesameseedate)** glýserín**, ilmefni, CI 77491, kol
** unnið úr lífrænum innihaldsefnum.

Geymist við herbergishita og látið þorna vel á milli.  Notið útvortis. Varist að sápa berist í augu og hættið notkun ef óþægindi koma fram.

Vörumerki

Ciment

Stærð

100 grömm