Nýtt

sápa Lampion

1.980 kr.

Á lager

Ciment Paris er lítil sápugerð sem Solène og Jérémy  settu á fót í París með sjálfbærni og nálægðarhagkerfi í huga.
Sápurnar þeirra eru handgerðar frá grunni í köldu sápuferli, innihaldsefnin eru lífræn án ofnæmisvaka og ilmkjarnaolía.  Sápurnar eru því umhverfis- og húðvænar og ilma að auki undurvel.   Hver sápa er listaverk með grafísku mynstri sem lífgar upp á baðherbergið eða eldhúsvaskinn.

Mynstrið í Lampion sápunni er innblásið af litríkum pappírsluktum sem svífa á sumarkvöldi og eru þær ýmist með hvítri, blárri, gulri eða rauðri doppu.  Sápan ilmar af jasmín og hentar öllum frá 3 ára aldri.

Innihaldsefni:   kókosolía (sodium cocoate)**, vatn, sesamolía (sodium sesameseedate)** glýserín**, ilmefni, CI 77019, CI 77891, CI 77499, CI 77742, CI 77007, CI 77492, CI 77491
** unnið úr lífrænum innihaldsefnum.

Geymist við herbergishita og látið þorna vel á milli.  Notið útvortis. Varist að sápa berist í augu og hættið notkun ef óþægindi koma fram.

Vörumerki

Ciment

Stærð

100 grömm