Það sem almennt einkennir skrælihnífa er svokölluð „birds beak“ lögunin á egginni sem er þægilegt þegar þú skerð í höndunum. Skrælihnífur 114 frá Opinel er þar að auki með litlar tennur ofan á blaðinu. Þær geta komið sér vel þegar kemur að því að þrífa og skrapa rótargrænmeti lauslega.
Ath. Stærð miðast við lengd hnífsblaðsins.