smáréttadiskur ljós
3.900 kr.
Ekki til á lager
Smáréttadiskur frá Emile Henry sem hægt er að nota til að bera fram beint úr ofninum eða úr kæli eftir því hvað á best við.
Smápizzur, litlar smjördeigsbollur, rauðrófusneiðar, spjót, snúðar… bara baka og bera beint fram á sama plattanum.
Þannig heldur diskurinn réttunum heitum lengur á borðinu, nema þú viljir frysta hann og nota til að bera fram ostrur, sjávarrétti eða svalandi ávaxtapinna sem þurfa að haldast vel kaldir.
Á diskinum er uppreist handfang svo auðvelt er að lyfta honum og bera fram, hann er rispuþolinn svo það má skera beint á diskinum.
Plattinn er gerður úr „High Resistance“© keramík og þolir því frá -20 til 270°, má fara í uppþvottavél, ofn og örbylgjuofn. Laust við blý, kadmíum og nikkel.
Stærð 16 x 29 cm.
| Vörumerki | Emile Henry |
|---|---|
| Efniviður | Keramík |
| Litur | Ljóst |



