sósupottur Affinity, tvær stærðir

28.900 kr.30.900 kr.

Affinity vörurnar frá deBuyer eru með fimm lög af ryðfríu stáli og áli (stál-ál-stál-ál-stál) til að tryggja góða hitaleiðni. Kosturinn við marglaga potta er að hitinn dreifist jafnt og þétt upp með brúnum pottsins – ekki einungis í botninum. Lögun sósupottsins stuðlar að snöggri hitadreifingu sem er kjörið fyrir sósur og pottrétti.

Skaftið er rúnnað og úr steyptu ryðfríu stáli sem hitnar ekki út frá pottinum. Brúnin á sósupottinum er hönnuð til þess að auðvelt sé að hella úr honum. Hægt er að fá stállok sem passar á pottinn.

Ø20 cm sósupotturinn rúmar 1,8 lítra.
Ø24 cm sósupotturinn rúmar 2,8 lítra.

Það má setja Affinity sósupottinn í uppþvottavél og gengur hann enn fremur á öll helluborð – einnig á spanhellur. Hitaleiðni pottsins er gríðarlega góð og er því mælt er með að hita pottinn jafnt og þétt í stað þess að setja hitann strax í botn.

 

Vörumerki

deBuyer

Efniviður

Ál

,

Stál

Litur

Stál

Stærð

Ø 20 CM

,

Ø 24 CM