spírusett
3.590 kr.
Ekki til á lager
Kilner® spírusettið er hannað til að gera spírun fræja, bauna eða korns eins einfalda og mögulegt er.
Spírun er frábær leið til að bæta við auka næringarefnum, bragði og áferð í réttina þína og þetta sett býður upp á bestu skilyrði fyrir spírur til að þroskast heima í eldhúsi.
Fyrst leggurðu fræin eða kornið í bleyti í glerkrukkunni í þann tíma sem óskað er eftir. Svo er vatninu helt frá í gegnum ryðfría stálsigtið sem tryggir að fræin fara ekkert. Þvínæst er krukkan sett á hvolf ofan á keramikbotninn, þannig að spírurnar geti þroskast þar sem umframvatn rennur örugglega niður í botninn. Skola þarf spírurnar a.m.k. daglega á meðan þær eru að vaxa. Þegar spírurnar eru tilbúnar má síðan neyta þeirra strax eða geyma í glerkrukkunni með lokinu.
Spírusettið kemur í litríkum gjafakassa með uppskrifta- og leiðbeiningabæklingi, sem gerir það að tilvalinni gjöf.
Glerkrukkuna og keramikbotninn má þvo í uppþvottavél. Málm- og sílikoníhlutir skal þvo og þurrka í höndunum í volgu sápuvatni.
Settið inniheldur
1 x 0,5 lítra Kilner® krukka með víðu opi
1 x Keramikbotn
1 x Sílikonhringur
1 x Innlegg úr ryðfríu stáli
1 x Lok
1 x Uppskrifta- og leiðbeiningabæklingur
| Vörumerki | Kilner |
|---|---|
| Efniviður | Gler, Postulín, ryðfrítt stál |
| Litur | Glært |
| Stærð | 500 ML |




