stórt fat Maguelone, orage uni
18.900 kr.
Á lager
Maguelone línan frá Jars Ceramistes er fullkomlega ófullkomin og lifandi í laginu. Glerungurinn er sprunginn og fjölbreytilegur í litbrigðum svo engir tveir hlutir eru nákvæmlega eins enda er allur steinleirinn frá Jars handunninn á verkstæðinu þeirra í Suður Frakklandi. Orage Uni liturinn er dökkgrænn.
Stóra fatið er 43 cm á lengd og 28 cm á breidd og hentar t.d. undir gómsæta smárétti í kokteilboði eða fallega framreitt hangikjöt á jólaborðinu.
| Vörumerki | Jars Ceramistes |
|---|---|
| Efniviður | Steinleir |
| Litur | Dökkgrænt |
| Stærð | 43 x 28 cm |

