stórt steikarstál með handföngum
29.800 kr.
Á lager
Steikarstálin frá Gourmetstål breyta eldavélinni þinni í ekta veitingastaða steikarhellu sem hentar til að steikja sveitta borgara jafnt sem dýrindis villbráð. Steikarstálið hentar á allar gerðir hitagjafa, þ.m.t. á spanhellur, og líka yfir grill og opin eld. Til að nota stálið yfir opnum eldi mælum við með fótunum sem smella undir það og lyfta 30 frá jörðu. Sjá hér.
Þegar kemur að þrifum er mikilvægt að hafa í huga að bökunarstálið er ekki ryðfrítt. Því þarf að passa að það standi ekki í bleyti eða þvíumlíkt yfir nótt, það er mun betra að leyfa því að kólna eftir notkun í um klukkustund. Þá er einnig auðveldara og þægilegra að vaska það upp, því næst skal þurrka stálið vel áður en það er lagt til hliðar á þurran stað.
Framleitt í Svíþjóð úr sænsku gæðastáli.
| Vörumerki | Gourmetstal |
|---|---|
| Efniviður | Stál |
| Litur | Stál |
| Stærð | 34 x 39 cm |


