Slow Coffee Style línan frá Kinto leggur áherslu á taka tíma og njóta þess að hella upp á kaffi. Í SCS settinu er að finna trektarstand, postulínstrekt, kaffikönnu, trektarglas og 20 kaffifiltera.
Settið er ákaflega fallegt með trektarstandi úr þykku stáli og glasi undir trektina eftir uppáhellingu. Það er hægt að stilla hæðina á trektarstandinum svo það er einnig lítið mál að brugga beint í bollann. Það má setja könnuna, trektina og trektarglasið í uppþvottavél.