vökvunarkeila Olla leir
3.250 kr.
Á lager
Fallegu Olla leirkerin frá franska fyrirtækinu Pepin passa upp á pottaplönturnar þínar fyrir þig. Þú stingur kerinu á bólakaf í blómapottinn og fyllir það svo af vatni með eða án næringar. Vatnið seytist svo í gegnum kerið út í moldina og heldur henni passlega rakri.
Olla leirkerin eru handgerð í Portúgal á verkstæði sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldu í fjórar kynslóðir en korktapparnir eru framleiddir í Frakklandi úr korki úr sjálfbærri skógrækt. Vörunum er svo pakkað í endurvinnanlegar neytendaumbúðir á vinnustað með stuðningi.
| Vörumerki |
Pepin |
|---|---|
| Efniviður |
Leir |
| Litur |
Brúnt |




