wok panna Mineral B, 28 cm
10.900 kr.
Á lager
Mineral B wokpönnurnar frá deBuyer eru úr 1,5 mm þykku karbonstáli sem er húðað með bývaxi. Bývaxið kemur í veg fyrir að karbonstálið oxíderast og er í senn fyrsta skrefið í tilsteikingu pönnunnar.
Við mælum sérstaklega með því að líta yfir bloggfærsluna að steikja til pönnu til að sjá hinar ólíku aðferðir steikingarinnar. Markmiðið er í raun að safna náttúrulegri húð á hráan efniviðinn sem gerir pönnuna viðloðunarfría með tímanum. Það er gott að hafa í huga að þeim mun svartari og ljótari sem pannan er, þeim mun betri er hún. Mineral B pannan gengur á öll helluborð, þar með talið spanhellur.
Kosturinn við wokpönnur er að það þarf ekki að nota mikið feiti við matreiðsluna. Þá er einnig hægt að stýra hversu mikið hin og þessi hráefni eldast með því að færa það upp og niður með hliðum pönnunnar. Þegar kemur að þrifum er best að „deglaza-a“ pönnunna að notkun lokinni. Þ.e.a.s. að hella svolitlu vatni í pönnuna yfir hita svo það sem eftir situr losnar. Því næst skal skola pönnuna, þurrka og nudda svolítilli olíu í pönnuna. Það má ekki setja Mineral B wokpönnuna í uppþvottavél og er mælt gegn því að vaska hana upp með uppþvottalegi.
Vörumerki |
deBuyer |
---|---|
Efniviður |
Karbonstál |
Litur |
Stál |
Stærð |
Ø 28 CM |