bleikur tertudiskur á fæti

Price range: 9.900 kr. through 25.900 kr.

Fallegu kökudiskarnir frá Mosser Glass eru steyptir úr gleri og eru stöðugir á borðinu þegar tertur og annað hnossgæti eru skorin.  Tertudiskarnir eru á háum fæti og samsvara sér vel og það er gaman að nota margar stærðir af diskum saman til að skapa skemmtilega vídd á veisluborðinu.  Á diskunum er smábrún svo sósa og mylsna ættu ekki að fara niður á dúkinn.  Ef þú vilt geturðu að sjálfsögðu líka notað diskana undir kerti, skraut eða skart.

Glerdiskarnir koma í 4 mismunandi stærðum og nokkrum litum
XS þvermál 15 cm  (16,5 cm með brún) og hæð 14 cm
S   þvermál 23 cm (24,5 cm með brún) og hæð 18 cm
M  þvermál 25 cm (26,5 cm með brún) og hæð 20 cm
L   þvermál 30 cm (31,5 cm með brún) og hæð 23 cm

Diskarnir eru handgerðir svo það getur skeikað örlitlu á stærðinni og liturinn er oft örlítið breytilegur milli eintaka.

Vörumerki

Mosser Glass

Efniviður

Gler

Litur

Bleikt

Stærð

Ø 15 CM

,

Ø 23 CM

,

Ø 25 CM

,

Ø 30,5 CM