Lokið á brauðformunum frá USA Pan tryggir ferkantað samlokubrauð. Lokinu er rennt á og af og er einnig hægt að sleppa lokinu og nota bara formið.
USA Pan vörurnar eru úr stáli og húðaðar með svokallaðri Americoat® húð sem er úr ál-og sílikonblöndu og gerir vörurnar viðloðunarfríar. Brauðformið þolir allt að 230° hita og má ekki setja í uppþvottavél. Það er einnig mælt með að nota aðeins viðar-, nælon-og sílikonáhöld í stað stáls sem gæti rispað formið.