„Kotte“ þýðir köngull á sænsku og sækja Kotte gólfmotturnar frá Pappelinu innblástur í samhverfu könglanna í sænsku Dölunum. Mottan sjálf er sandlituð og eru línurnar vanilluhvítar – á röngunni snúast litirnir við. Þessar gerðir eru soðnar saman á endunum sem gerir það að verkum að motturnar geta ekki raknað upp og liggja mjög flatar á gólfinu, án falds. Þykkt á mottunni er um 5 mm. Það getur munað ±4% innan stærða vegna þeirra handverksferla sem teppin ganga gegn um í framleiðslunni.
Motturnar koma í fjölmörgum stærðum, mynstrum og litum. Ef óskamottan þín er ekki til á lager geturðu samt pantað hana, afgreiðslufrestur á sérpöntunum er að jafnaði 3-4 vikur.
Mottan á myndinni er í stærðinni 70×300 cm.