Molly gólfmottan frá Pappelinu fer ekki fram hjá neinum með sex litríkum flötum í ólíkum samsetningum. Molly motturnar koma í sléttum metrum og endurtakast rendurnar einfaldlega þeim mun lengri sem mottan er. Litirnir í sævarmynstrinu eru: granítgrár, mistursblár, fölgrár, vanilluhvítur, gráblár og sæblár.
Þessar gerðir eru soðnar saman á endunum sem gerir það að verkum að motturnar geta ekki raknað upp og liggja mjög flatar á gólfinu, án falds. Þykkt á mottunni er um 5 mm. Það getur munað ±4% innan stærða vegna þeirra handverksferla sem teppin ganga gegn um í framleiðslunni.
Motturnar koma í fjölmörgum stærðum, mynstrum og litum. Ef óskamottan þín er ekki til á lager geturðu samt pantað hana, afgreiðslufrestur á sérpöntunum er að jafnaði 3-4 vikur.