Grófasta Gourmet rifjárnið rífur matvæli niður í flýti. Það kemur sér vel þegar rífa þarf t.d. kál, epli, kartöflur, gulrætur, kúrbít, papríkur, grasker og mjúkan ost.
Gourmet línan frá Microplane er mjög handhæg en það er silikon á enda tólsins sem heldur rifjárninu stöðugu við notkun. Stálið er laserskorið sem viðheldur bitinu mjög vel og við mælum með að halda hlífinni sem fylgir!
Það má setja Gourmet rifjárnin í uppþvottavél en gott er að venja sig á að skola strax af því eftir notkun.