Gourmet hefilsrifjárnið sker matvæli niður í 2 mm þykkar sneiðar. Hefillinn kemur sér vel við skurð á kartöflum, gulrótum, kúrbít, radísum, lauk, salami, eplum og margt fleira.
Gourmet línan frá Microplane er mjög handhæg en það er silikon á enda tólsins sem heldur rifjárninu stöðugu við notkun. Stálið er laserskorið sem viðheldur bitinu mjög vel og við mælum með að halda hlífinni sem fylgir!
Það má setja Gourmet rifjárnin í uppþvottavél en gott er að venja sig á að skola strax af því eftir notkun.