Nú fæst mini útgáfa af poppskálinni frá Lékué sem slegið hefur í gegn hjá poppáhugamönnum um allt land! Þessi sniðuga skál er úr platínusílikoninu sem Lékué er frægt fyrir en það er einstaklega hitaþolið og alveg laust við eiturefni. Í skálina setur þú einfaldlega baunir eftir þörfum og olíu ef þú vilt. Síðan fer lokið á og skálin inn í örbylgjuofn í 3-5 mínútur en tíminn fer eftir gerð baunanna og örbylgjuofninum. Flóknara er það ekki og nú er orðið til popp.
Auðvelt er að þrífa skálina – hún má fara í uppþvottavél auk þess sem lítið festist við sílikonið. Einn af kostunum við poppskálina er að það er hægt að poppa þurrt popp án olíu því það er gufan sem sér um að poppa baunirnar. Þetta kemur sér vel fyrir þá sem þola ekki mikla feiti eða vilja sleppa henni af öðrum ástæðum. Uppskriftir og góðar leiðbeiningar fylgja með.