Íbúar Víetnam hafa, árþúsundum saman, notað pálmalauf til að ferðast með mat sem þau borða svo beint af sama laufinu. Þessa hefð nýttu hönnuðirnir á bak við Uhmm Box sem innblástur fyrir umhverfisvænu plastboxin sín . Nestisboxin er hægt að fletja alveg út og gera þau þannig að diski en eru þó nógu stíf til að hliðarnar haldist uppi ef til þarf. Uhmm Box spara þér pláss en hægt er að stafla þeim eða geyma upp á rönd inni í skáp auk þess sem þau raðast vel í uppþvottavél. Vorum við búin að nefna að þú þarft aldrei að leita að lokinu?
Nestisboxin eru ekki 100% þétt heldur leyfa matnum „anda“ svo hann haldist ferskur. Þetta þýðir að boxin henta einstaklega vel til að geyma ferskvöru s.s. osta, salat, brauð og margt fleira. Þar sem Uhmm Box lætur aðeins lofta um matinn er hægt að skella því lokuðu inn í örbylgjuofn, gufan sleppur út og innihaldið hitnar fyrr. Þrátt fyrir þetta er boxið þétt og öruggt er að geyma allt nema fljótandi vökva í því.
Notaðu Uhmm Box líka inni á baði og í barnaherberginu! Boxin eru alls ekki takmörkuð við mat – falleg hönnunin sómir sér hvar sem er. Það fer vel um snyrtivörur, tréliti, smáhluti og ótal margt fleira í Uhmm Boxinu þínu.