Lögunin á Nick & Nora glösunum er skírskotun í kvikmyndina The Thin Man frá fjórða áratugnum. Freddo Nick & Nora glösin frá Urban Bar eru fjölhæf en hægt er að nota þau sem bæði vínglös og kokteilglös.
Freddo þýðir kuldi á ítölsku og er lögun Freddo glasanna innblásin af frosti. Glösin eru þykk að neðan og falla vel í hendi. Það má setja Freddo Nick & Nora glasið í uppþvottavél.