Þetta lag á ostaskera er klassískt og hentar í flestalla osta og sker í hæfilega þykkar sneiðar.
Amittolínan er nýjasta viðbót við úrvalið hjá Bjørklund1925. Nafnið Amitto er fengið úr latínu en hægt er að þýða það sem að „losa“ eða „sleppa“. Ostaskerarnir eru húðaðir svo osturinn loðir síður við þá og er skaftið hannað til að liggja vel í lófanum.
Það má setja Amitto ostaskerana í uppþvottavél og er 10 ára framleiðsluábyrgð á þeim.